pælingar háttvirts háskólanema

sunnudagur, júlí 06, 2003

Nohhh....tad er bara komid nytt look a bloggarasiduna. Ja, tad hefur aldeilis margt gerst sidan sidasta blogg leit dagsins ljos. Sumarid er i fullum bloma og freknurnar hafa gert sig heimakomnar a nefinu a mer eins og ?tid a sumarmanudum.

Eg sa um daginn mynd sem eg held hreinlega ad se su besta sem eg hef sed hingad til. tid kannist e.t.v. vid hana Elsker dig for evigt eda Open hearts eins og stendur framan a hulstrinu a islenskum leigum. Tessi mynd er hreint ohugnanlega god. Fjallar um alvoru folk i alvoru adstaedum. Alveg hreint mognud mynd. Farid nu oll og gerid sjalfum ykkur greida og sjaid tessa mynd tar sem allir hafa hreinlega gott af tvi ad bursta sykurbleikt rykid af sidferdis heilasellunum.

Eg for i raun ad hugsa um allt og alla sem eg hef kynnst og hvernig lifid er eitt titrandi tar, sem brugdid? getur ferd sinni i allar attir. Eg hef verid svo ohemju lukkuleg med taer attir sem eg hef lent i. Kynnst dasamlegu folki og upplifad svo otal margt skemmtilegt og gott. Eg veit ad tetta er ekki alveg i anda hinna eiturhordu bloggara sem eru svo kaldhaednir og flottir i sinum bloggum, en hvad med tad tetta er bara tad sem ég vildi segja.

Nohhh....það er bara komið nýtt look á bloggarasíðuna. Já það hefur aldeilis margt gerst síðan síðasta blogg leit dagsins ljós. sumarið er i fullum blóma og freknurnar búnar að gera sig heimakomnar á nefinu á mér eins og ætíð á sumarmánuðum.

Ég sá um daginn mynd sem ég held hreinlega að sé sú besta sem ég hef séð hingað til. Þið kannist e.t.v. við hana Elsker dig for evigt eða Open harts eins og stendur framan á hulstrinu á íslenskum leigum. Þessi mynd er hreint áhugnanlega góð. Fjallar um alvöru fólk í alvöru aðstæðum. Alveg hreint mögnuð mynd. Farið nú öll og gerið sjálfum ykkur greiða og sjáið þessa mynd þar sem allir hafa hreinlega gott af því að bursta sykurbleikt rykið af siðferðis heilasellunum.

Ég fór í raun að hugsa um allt og alla sem ég hef kynnst og hvernig lífið er eitt titrandi tár, sem brugðið getur ferð sinni í allar áttir. Ég hef verið svo óhemju lukkuleg með þær áttir sem ég hef lent í. Kynnst dásamlegu fólki og upplifað svo ótal margt skemmtilegt og gott. Ég veit að þetta er ekki alveg i anda hinna eiturhörðu bloggara sem eru svo kaldheðnir og flottir í sínum bloggum en hvað með það þetta er bara það sem ég vil segja.