pælingar háttvirts háskólanema

sunnudagur, júlí 06, 2003

Nohhh....það er bara komið nýtt look á bloggarasíðuna. Já það hefur aldeilis margt gerst síðan síðasta blogg leit dagsins ljós. sumarið er i fullum blóma og freknurnar búnar að gera sig heimakomnar á nefinu á mér eins og ætíð á sumarmánuðum.

Ég sá um daginn mynd sem ég held hreinlega að sé sú besta sem ég hef séð hingað til. Þið kannist e.t.v. við hana Elsker dig for evigt eða Open harts eins og stendur framan á hulstrinu á íslenskum leigum. Þessi mynd er hreint áhugnanlega góð. Fjallar um alvöru fólk í alvöru aðstæðum. Alveg hreint mögnuð mynd. Farið nú öll og gerið sjálfum ykkur greiða og sjáið þessa mynd þar sem allir hafa hreinlega gott af því að bursta sykurbleikt rykið af siðferðis heilasellunum.

Ég fór í raun að hugsa um allt og alla sem ég hef kynnst og hvernig lífið er eitt titrandi tár, sem brugðið getur ferð sinni í allar áttir. Ég hef verið svo óhemju lukkuleg með þær áttir sem ég hef lent í. Kynnst dásamlegu fólki og upplifað svo ótal margt skemmtilegt og gott. Ég veit að þetta er ekki alveg i anda hinna eiturhörðu bloggara sem eru svo kaldheðnir og flottir í sínum bloggum en hvað með það þetta er bara það sem ég vil segja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home