pælingar háttvirts háskólanema

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

hæbb langt um liðið síðan síðast. Segir kannski meira en mörg orð um aukin þunga í náminu og víðar. Jæja þá er komið að kosningum hjá stúdentunum. Ég er MIKILL RÖSKVU aðdáandi og held bara að lidtinn í ár sé með þeim magnaðri síðari ár!! Gaman að sjá að fólk er að taka önnur mál til athugunar eins og jafnrétti í mannaráðningum til skólans og annað í þeim dúr, til viðbótar við þessi eilífðar mál um lánamál og annað í þeim dúr. Vona bara að allt gangi vel og stefnan skili Röskvu til sigurs! Því ohh my lord Vaka er ekki einu sinni búin að gera upp við sig hvort þau styðji skólagjöld. Segja nei í Háskólanum en þar innan um eru kanditatar sem í sinni einkamálapólitík tala fyrir skólagjöldum...en hvað getur maður sagt kannski á þetta fólk bara erfitt með að ákveða sig, sem er nákvæmlega það sem maður leitar eftir þegar maður felur einhverjum ákvörðunar vald fyrir sig í kosningum.

over and out

http://www.roskva.hi.is

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home